Feeds:
Færslur
Ummæli

Halló heimur

Ég hef ekki bloggað lengi, reyndar mjög lengi og á því verður breyting næstu vikurnar. Reyndar er eiginlega bara gott að ég hef ekki bloggað síðustu mánuði, í ljósi aðstæðna í þjóðfélagunu þá hefði ég örugglega skrifað eitthvað sem er óábyrgt eða gæti sært einhvern.  En ég hef komist að þeirri niðurstöðu varðandi þessa kreppu að þetta eru allt hálfvitar í mismunandi flokkum.

 

Ég gerðist svo grand á því í jólafríinu að ég(við) splæstum í stöð 2 svona rétt yfir jólin, og það átti svo aldeilis að horfa á gott sjónvarp.  Við (nb: VIÐ) vorum ekki lengi að komast að þeirri niðurstöðu að þetta myndum við aldrei gera aftur, þvílík og önnur eins drasl dagskrá sem ég hef borgað fyrir, ég stóð mig yfirleitt að því að horfa á RUV eða Skj1 í staðin fyrir að horfa á Stöð2. Þessi stöð endursýnir meira en Skj1, aldrei skal ég borga fyrir þennan sora aftur. 

 

Topp 10. listi yfir hluti sem ég mun gera frekar en að kaupa áskrift að Stöð2

1.reykja

2.borga fyrir einkadans

3. gefa peninginn til mæðrastyrksnefndar

4. borga aukalega í nefskatt fyrir RÚV

5.borga fyrir að horfa á utandeildarleik í kvennaknattspyrnu.

6. styrkja olíufélögin

7. kaupa KR flugelda (held samt að ég myndi frekar kaupa áskrift að stöð2)

8.styrkja neyðarstjórn kvenna

9.kaupa pott og sleif handa mótmælanda

10. borga vax fyrir Garðar bekkjarfélaga minn

 

Og að lokum langar mig að enda á myndagetraun sem vöktu mikla lukku hér í fyrra. Orðið er samsett úr þessum myndu hér fyrir neðan.

images-11

images

 

 

kv.

Bjammi

í þá gömlu góðu..

Allt frá því að Bjössi og Árni frændi hans talsettu andabæjarsjónvarpið hér forðum daga hef ég pælt mikið í teiknimyndum. Að sama skapi hef ég líka oft furðað mig á innkaupastjórum barnaefnis hér heima þar sem að mér finnst barnaefnið í dag ekki komast með tærnar þar sem barnaefnið í “mína” tíð hafði hælana. Barnaefni í dag er eiginlega bara leiðinlegt. Hér mun ég bæta úr því…….

Draumasteinn

Hver man ekki eftir þessu.

Ofurhetjur voru glæsilegar

Sem og þessi ofurhetja

Pozi og félagar

Besta ofurhetjan

Thundercats

Rambo

Einu sinni var

Gummibears

Skot og mark

 

Svo var líka leikið efni en misgott, en það sem flestum þykir vont þótti Bjössa gott.

 

Beykigróf

Þetta var heilagur tími á heimili Bjössa

 

njótið vel.

 

kv.

Bjammi

Nú er lag

Nú þegar strákarnir “okkar” hafa sett þjóðina á hausinn er ekki laust við líta aðeins fram á vegin og finna raunverulega strákinn (stelpu) “okkar”. Ég vill einmitt að meina að við ættum að notfæra okkur krepputalið til hins ýtrasta. Þið mynduð spyrja hvernig, ég skal sko segja ykur hvernig.  Forráðamenn handboltans sögðu að eftir ÓL árangur landsliðins að nú væri lag fyrir hreyfinguna að efla yngriflokkana með þeim meðbyr sem landsliðið kom með til landsins. Og það hefur heldur betur skilað sér, iðkendafjöldi hefur aukist til muna. En hvernig getum við notað “meðbyr” kreppunnar.

Sundmenn Íslands gjörsmlega skitu á sig á Ólympíuleikunum og ekki er útlit fyrir að þeir séu að fara að gera einhverjar gloríur 2012 í London. Hvað geturm við ger?  Jú Bjammi er með ráð undir rifi hverju.  Kreppa er vinsælasta orðið í dag og hvernig náum við  að koma því í íþróttirnar og framleiða næsta afreksmann. Bringusundmaður gæti orðið okkar næsta þjóðhetja.  Grunnatriðin í bringusundi eru einmitt  beygja, KREPPA, sundur og saman, og með þetta að leiðarljósi ættum við að lokka ungviðið í sundi svona rétt á meðan kreppan blómstrar……eða ekki

Kv.

Bjammi með ráð undir rifi hverju.

Kings of Leon

Þynnka eftir gott djamm með Sjúkraþjálfun…..þá er ekkert betra en að rífa kollinn úr postulíninu og skella sér á KFC og þynnkunni er bjargað.  Latur, slappur, þreyttur og algjörlega orkulaus þá kom aðeins eitt til greina …….nýja platan hjá Kings of Leon. Þessi plata er að fá topp dóma á öllum vígstöðum og eftir að hafa rennt henni 15 sinnum í gegn sé ekki fram á að eitthvað annað komist að hjá mér næstu vikurnar og kemur hún sem himnasending fyrir átökin á Ana(l)tómíuna sem fer bráðum af stað.

Mæli með því að þið kaupið þessa plötu því hún er meistaraverk.

 

mitt uppáhaldslag.

Söngfugl

Fyrir mörgun árum heima í litla bænum mínum á rúnntinum var ég að syngja  ofaní lagið sem var verið að spila í græjunum og átti ég eina línu í textanum sem var so vitlaus að það náði engri átt og næsta sem ég vissi var að Arnar Logi félagi minn grenjaði úr hlátri…..

Ég hafði semsagt tekið eina setninguna í laginu og gert hana að “minni”

En þetta var lagið “Have a nice day” með Stereophonics.  En þegar línan sem vísar í heiti lagsins kom þá söng ég “have an ashtrey”.

Eins um daginn var ég að vinna í Miðbergi þá söng vinnufélagi minn brot úr lagi með textanum “rennur af stað ungi riddarinn” þá glotti ég út í annað þegar ég fattaði að ég hafði einnig sungið þessa línu vitlaust í mörg ár, ég söng alltaf “rennur af stað út í Reykjavík”.  Sem sagt mér finnst gaman að syngja með lögum þó svo ég geri það ekki rétt í hvert skipti, það er bara að vera með.

EN, ljóst er að ég hef fundið nýjan tíma til þess að vera lærandi. Það mun vera á sama tíma og þátturinn Singing bee er í gangi á Skjá1, sem ég hafði smá væntingar um (samt ekki of miklar). Ég gerði heiðarlega tilraun til þess að horfa á þennan og ég er enn að ná mér eftir hann.  Fyrir það fyrsta þá er ljóst að þáttakendum þótti flestum erfitt að standa þarna á sviðinu, ég sé engan tilgang með þessum dönsurum á pallinum en ég get svosem horft framhjá þessu. Kynnirinn hann Arnar (Jónsi) í svörtum fötum er einn sá versti sjónvarpsmaður sem ég hef séð. Tilgerðin er svo mikil að hún gerir hann enn ***mmalegri en hann virtist vera eftir að hafa kynnt í skólahreysti………ég mun aldrei horfa aftur á Singing bee. Ég held að Bergór Pálsson sé betur til þess fallinn að sjá um þennan þátt.

 

kv.

Bjammi

Háskóladrengur

Já góðan og blessaðan daginn.

 

Nú er heldur langt síðan ég bloggaði síðast, eða um það leyti þegar landsliðið í handbolta lenti hér á Reykjavíkurflugvelli og Bogi Ágústsson lýsti því á sinn einstaka máta. En helsta ástæða þess að ég hef ekki verið iðinn við að blogga er einfaldlega sú að ég er kominn í nýja vinnu, en ég var ráðinn sem verkefnisstjóri félagsmiðstöðvarinnar Miðberg(unglingastarf) í vetur og hef ég verið á fullu í undirbúningi við að koma starfinu í gang. Tvær vikur í undirbúning á fullu og allt gekk vel og fyrsta kvöldið sem við opnuðum var 1.sept og húsið var stappað af ungligum. En viti menn morguninn eftir fékk ég hringingu í vinnunni þess efnis að ég væri kominn með pláss í sjúkrþjálfun við HÍ og þyrfti að svara eins fljótt og ég gæti.

Þá var farið á fullt í það að fá sig lausan úr vinnunni sem ég fékk og kann ég mjög vel að meta það hvernig tekið var á þessari stöðu sem var komin upp….áfram MIÐBERG. En já ég er kominn á fullt í nám og líkar bara vel, svolítið strembið því ég byrjaði viku seinna en allir hinir í bekknum. Ég hvet ykkur líka eindregið til þess að fara inn á www.hi.is og kíkja á bannerinn sem auglýsir deildirnar sem starfræktar eru í HÍ, þar leynist mynd af ungum fallegum dreng.

 

Á leið heim úr skólanum í vikunni skutlaði ég bekkjarfélaga mínum heim þar sem ég pikkaði hann upp er hann beið eftir strætó, hann býr hér rétt hjá mér og því í leiðinni að skutla honum. En viti menn þegar við spjölluðum saman kom í ljós að ég hafði kennt honum í framhaldsskóla þegar ég og Eyjólfur forum í verknám til Vestmannaeyja…..er ég orðinn svona gamall?

 

Nú hef ég látið undan pressu frá sköllóttum litlum frænda mínum (nei hann er ekki ungabarn) og bloggað eins og enginn sé morgundagurinn. Helgi þessi færsla var tileinkuð þér.

 

 

kv.

Bjammi

Beygla

Í dag þegar ég vaknaði sæll og glaður með sigur íslands á ól  í Peking og BNA-Kína rétt að byrja í körfu ákvað ég mér að fá mér morgunverð. Opnaði frystinn og tók út beyglu, skellti henni í ristavélina og gerði allt áleggið klárt. Skar ostinn , tók út sultina og smjörið og hellti svo mjólk í glas. Svo kom að því að gera beygluna klára. Þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem ég fæ mér beyglu og ég skildi þarna af hverju ég hef ekki fengið mér beyglu áður. Það er svo asnalegt að smyrja hana í hring og svo raðast osturinn mjög óhagstætt á hana og að setja sultuna í hring ofan á ostinn er bara asnalegt. Ekki misskilja mig, beyglan var ljúffeng en hún er mjög ópraktisk og svo þjónar þetta blessaða gat engum tilgangi. Næst þá fæ ég mér brauðsneið.

Um daginn var frétt um japanskan skiptinema við háskólann hér sem varð fyrir því óláni að tölvunni hans með mastersritgerð var stolið.  Hann hefði betur verið kominn með þetta snilldar forrit í tölvuna sína, legg til að þið setjið þetta inn hjá ykkur því maður veit jú aldrei.

annars þá klikkaði síðasta færsla eitthvað með myndirnar en þær eru einnig að sjá hér.

kv.

Bjammi

KL. 15 á Föstudeginum höfðum við engin plön önnur en þau að vera í bænum, en þá kom þetta góða boð frá Lýð og frú (Ingu) að skella sér með þeim austur undir Vatnajökul þar sem bróðir Ingu vinnur við snjósleða og jeppaferðir upp á jökul, og mæli ég með því að þið kíkið þarna við ef þið eruð á ferðinni. Glæsileg ferð í alla staði og dýrindis grill heitur pottur eftir mat og svo beint á fjórhjól sem við fengum að taka aðeins í og drifta í fjörunni. En í pottinum fengum við þá frábæru hugmynd að reyna að koma okkur til eyja á sunnudeginum og til baka á mánudeginum frá Bakka, en því miður gekk það ekki vegna veðurs og í stað þess að fara til eyja skelltum við okkur bara suður á ný og heim til okkar og Lýður grillaði ofaní mannskapinn.

Í mótvægi við allar fylleríismyndirnar frá eyjum sem tröllríða netinu þá ákvað ég að skella inn nokkrum myndum frá helginni.

Alltaf skal ég vera töff

Þvílíkur sleði

Hvannadalshnjúkur þarna fyrir aftan

Vatnajökull

Þegar niður var komið beið grillveisla

Fjórhjólaferðin

Og Gulla og Jói kíktu í mat, an flestir með hugann við eyjar.

Enskukennsla

Það að geta slegið á létta strengi á erelndu tungumáli liggur ekki jafn vel fyrir okkur öllum, og sannaðist það vel þega Oddný Anna var að undirbúa heimsókn frá Venezuela. Við áttum vons á systrum frá Venezuela í heimsókn í nokkra daga í júlí en Oddný kynntist yngri stelpunni í enskuskóla í Cambridge. í undirbúningi heimsóknarinnar var ákveðið að fara með þær á þessa helstu túrista staði og þar á meða Þingvelli. Oddný spyr mig um hin ýmsu orð og hvernig eigi að bera þau fram á ensku, og svaraði ég eftir bestu getu og samvisku (í næstum öll skiptin). En þegar hún vildi ólm fá að vita hvernig eitt orðið væri borið fram á ensku sá ég mér leik á borði.

“Hvernig segi ég stuðlaberg á ensku?” Oddný

“Sudlíberg” Ég

“Er það?” Oddný

“Já” Ég

“Ertu viss” Oddný

“já, sko þetta er svona  stud=stuð, lí=la, berg=berg” Ég

“Ok, takk fyrir” Oddný

Hún fór svo í vinnuna og spurði vinnufélagana um hvort að þetta væri rétt hjá mér og þá var mikið hlegið.

kv.

Bjammi

Nú er 6 árið mitt sem vallarstarfsmaður á Korpu gengið í garð og síðastliðinn föstudag var staffamót og matur eftir það. Það er skemst frá því að segja að við Korpudrengirnir unnum lang flest verðlaunin sem voru í boði enda afburða kylfingar þar á ferð. Flest allir spiluðum við 18 holur nem einn hann fór 9 en röæti 18 (hann X-aði 9 holur). Eftir mót og mat var almenn “peggun” í gangi svona rétt fyrir meistaramótstörnina sem er byrjuð hjá okkur.

Eftir 6 ár við brautarslátt hef ég komist að því að það að vera vallarstarfsmaður er líkt og að vera Liverpool aðdáandi í enska boltanum.  Hvernig? jú kylfingar breytast seint í því hversu ágengir þeir eru í þvi að slá boltunum sínum í átt að okkur á vellinum þegar við erum við störf. Það skiptir engu hvort að við séum í 10m eða 200m fjarlægð, á okkur er bara slegið. Ég hef verið frekar duglegur í því að ræða við fólk sem slær á mig í gegnum tíðina og ég er að gefast upp. Ég er að spá í að vopna mig upp með einhverri kylfu á vélinni og þegar einhver slær á langar mig að slá til baka og gá hver viðbrögð viðkomandi verða.

Það er sjaldnast að kylfingur biðst afsökunar eða því um líkt heldur þurfum við yfirleitt að nálgast viðkomandi að fyrra bragði og ræða við þau. Og svörin sem við fáum eru oftast þau sömu

“ég hélt að þú sæi mig”  þá hefði ég gefið merki um það

“eigið þið ekki að vera með hjálm” þá fyrst myndu kylfingar ekki hugsa sig um áður en þeir slá á okkur

“ég bjóst bara ekki við því að ég myndi drífa alla leið” eiga allir kylfingar draumahöggði þegar þeir slá í átt ða starfsmönnum?

Þegar ég svo spyr viðkomandi hvort að hann hefði slegið ef það hafði verið holl að spila á sama stað og ég var og þá er svarið oftast “nei” en þeim finnst í lagi að slá á okkur.

Næst þá slæ ég til baka.

Skemmtilegasta atvikið sem ég hef orðið fyrir var í vikunni þegar ég og Höddi ofurstarfsmaður vorum að handslá grínin og 2 menn voru að koma að gríninu sem við vorum að slá og þeir voru í ca. 60m fjarlægð. Við vorum að klára smá svæði áður en við ætluðum ða stoppa og leyfa þeim að slá inn á grínið og viti menn, ég slæ eina rönd á gríninu og lít svo til bara og þá var kúla komin inn á grínið fyrir aftan mig, ég varð pirrðaur og gaf merkingu um ða ég væri eki sáttur. Þegar viðkomandi kom svo að gríninu þá sagði ég við hann að hann hefði nú getað beðið með að slá þangað til að við hefðum gefið merki um að við sæum boltann og værum öruggir þá svaraði hann “já, en maður veit aldrei hvenær maður á að slá á ykkur”…..er ekki allt í lagi ég svaraði “uuhhhh maður á ekki að slá Á okkur”  Svo þegar við kláruðum grínið sagði Höddi mér sem horfði á höggið að það hefði lennt rétt fyrir aftan mig.

Vitið þið af hvejrju Pólverjar safna yfirvaraskeggi?  Til að líkjast mömmu sinni (brandari frá leigubílstjóranum á föstudaginn)

kv.

Bjammi

Older Posts »